Sandblástursfilmur

Við bjóðum upp á sandblástursfilmur fyrir glugga, skilrúm og önnur glerfleti á heimilum og í fyrirtækjum. Filmurnar gefa glerinu fágað og matt yfirbragð, auka næði og henta vel þar sem óskað er eftir praktískri lausn án þess að loka fyrir birtu.

Hægt er að útfæra filmurnar á fjölbreyttan hátt, hvort sem þú vilt einfalda heildarfilmu, mynstur, rendur eða sérsniðnar merkingar með lógói eða hönnun.

Við leggjum áherslu á nákvæma uppsetningu og vandaðan frágang svo útkoman verði bæði snyrtileg og fagleg.