• Bílamerkingar

    Frá einföldum lógómerkingum upp í stærri heildarlausnir.

  • Límmiðar

    Sérsniðnir límmiðar fyrir fyrirtæki, bíla, búðir og allt þar á milli.

  • Sandblástursfilmur

    Fágaðar og praktískar lausnir fyrir glugga, skilrúm og fyrirtækjarými.

  • Sólarfilmur

    Sólarfilmur fyrir heimili og fyrirtæki með mismunandi skyggingu og útfærslum.

  • Fatnaður

    Merkingar á boli, peysur, húfur og annan fatnað fyrir fyrirtæki, hópa og einstaklinga.

  • Ilmspjöld

    Sérhönnuð ilmspjöld með þínu lógói, útliti og ilmi.

ERTU MEÐ VERKEFNI Í HUGA?

Sendu okkur upplýsingar um verkefnið og við finnum lausn sem hentar.

MERKISMIÐJAN

Merkismiðjan er lítið sprotafyrirtæki sem byggir á margra ára reynslu af merkingum, prentun og sérlausnum.

Áður en við opnuðum okkar eigið fyrirtæki höfðum við unnið við merkingar í mörg ár og öðlast víðtæka reynslu af fjölbreyttum verkefnum allt frá einföldum límmiðum og fatamerkingum upp í bílamerkingar og stærri heildarlausnir.

Samhliða merkingum og prentun erum við einnig í innflutningi á merkivörum og leggjum áherslu á að geta boðið gott úrval af efnum og lausnum fyrir ólíkar þarfir.

Markmiðið með Merkismiðjunni er einfalt að bjóða persónulega þjónustu, vandaða vinnu og lausnir sem eru sniðnar að hverju verkefni fyrir sig.

VANTAR ÞIG HJÁLP VIÐ HÖNNUN?

Ertu með hugmynd en ekki tilbúna hönnun? Við getum aðstoðað við að útfæra hugmyndina og gera hana tilbúna fyrir merkingu eða prentun.

  • UNNIÐ EFTIR PÖNTUN

    Við vinnum öll verkefni eftir pöntunum og í samráði við viðskiptavin.

  • SÉRSNIÐNAR LAUSNIR

    Hvert verkefni er útfært eftir þínum þörfum, hvort sem um er að ræða límmiða, merkingar eða stærri lausnir.

  • INNFLUTNINGUR MERKIVARA

    Við erum einnig í innflutningi á merkivörum og bjóðum fjölbreytt úrval efna og lausna.