Ilmspjöld

Við bjóðum upp á sérhönnuð ilmspjöld fyrir fyrirtæki, vörumerki, viðburði og einstaklinga. Hægt er að sérsníða útlitið með þínu lógói, litum og hönnun og velja ilm sem passar við vörumerkið eða tilefnið.

Ilmspjöldin henta vel sem kynningarefni, gjafir, söluvara eða einfaldlega sem skemmtileg leið til að láta vörumerkið þitt standa upp úr. Við leggjum áherslu á vandaða prentun, snyrtilegan frágang og útfærslu sem endurspeglar þitt útlit.