Límmiðar

Við framleiðum sérsniðna límmiða fyrir fyrirtæki, bíla, verslanir, viðburði og einstaklinga. Hvort sem um er að ræða lógó, texta, merkingar eða sérhannaðar útfærslur getum við aðstoðað við að finna lausn sem hentar verkefninu.

Límmiðarnir henta bæði til innanhúss- og utanhússnotkunar og eru fáanlegir í fjölbreyttum stærðum, formum og útfærslum. Við leggjum áherslu á góða prentun, vandaðan frágang og að lokaútkoman verði snyrtileg og fagleg.